Innlent

Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð

Árni Sæberg skrifar
Dekkið skoppaði ansi hátt upp á svalirnar.
Dekkið skoppaði ansi hátt upp á svalirnar. Vísir

Litlu mátti muna að slys yrðu á fólki þegar hjól losnaði undan strætisvagni sem ekið var vestur Miklubraut um miðjan mars síðastliðinn. Myndskeið sýnir hvernig hjólið skoppar á hús og fer illa með svalir þess.

Greint var frá því þann 16. mars síðastliðinn að kvöldið áður hefði hjólbarði losnað undan strætisvagni og endað á nærliggjandi húsi eftir að hafa farið utan í nokkra kyrrstæða bíla.

Vísi hefur nú áskotnast myndbandsupptaka úr öryggismyndavél hússins sem hjólið endaði á. Í myndskeiðinu sést hvernig hjólið kemur skoppandi inn á Rauðarárstíginn við Miklubraut og tekur síðan stórt skopp upp á svalir hússins, sem brotna nokkuð illa.

Mildi að ekki fór verr

Ljóst er að mikil mildi er að ekki fór verr, enda skoppaði þungt hjólið talsvert langa leið áður en það staðnæmdist við húsið. Húsráðandi segir í samtali við Vísi að atvikið hafi gerst rétt upp úr klukkan 22, en á þeim tíma sé oft mikil umferð gangandi vegfaranda í nágrenninu. Fólk að ganga með hunda við Klambratún og nágrenni fyrir svefninn og þar fram eftir götunum.

Talið er að dekkið hafi losnað undan vagninum þegar hann stoppaði á stoppistöðinni við Klambratún. Húsið er um 160 metrum frá stoppistöðinni.Vísir

Þá hafi leigjandi á jarðhæð hússins verið að klæða sig í jakka og á leið út um dyr á hlið hússins sem hjólið hæfði. Ekki hefði þurft að spyrja að leikslokum hefði hann verið kominn út og orðið í vegi dekksins.

Hluti af verkferlum að herða rærnar

Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó BS, segir í samtali við Vísi að það gerist af og til að hjól losni undan strætisvögnum. Greint var frá því tæpum mánuði eftir atvikið sem hér um ræðir að hjól hefði losnað undan öðrum strætisvagni í Hlíðunum í Reykjavík.

Því sé það hluti af verkferlum að herða rærnar reglulega en það geti gerst að rærnar losni meira en venjulega, til að mynda þegar ekið er yfir hraðahindranir og þess háttar. 

Vagninn sem hér um ræðir sé á vegum verktaka og því bæti tryggingafélag verktakans tjón á svölunum og þeim bílum sem hjólið rakst utan í.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×